Enn logar glatt í Fontainebleau-skóginum sunnan við París. Yfirvöld hafa nú staðfest að nærri 1.000 hektarar, eða 10 ferkílómetrar, eru nú brunnir. Það er álíka stórt svæði og sveitarfélagið Akranes.
Eldurinn kviknaði í gær og hefur slökkviliðsmönnum ekki tekist að ná stjórn á honum. Yfirmenn slökkviliðsins óttast að það geti tekið nokkra daga, jafnvel vikur. Borgarstjóri Fontainebleau segist aldrei hafa séð svona eld áður. Um 900 heimili hafa verið rýmd.
Laurent Nunez innanríkisráðherra Frakklands segir að 32 þúsund hektarar hafi þegar brunnið í gróðureldum á þessu ári í Frakklandi, meira en allt árið í fyrra. Það er svæði á stærð við Lónsöræfi og aðeins minna en sameiginlegt flatarmál Reykjavíkur og Kópavogs.