Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, fékk skammbyssu að gjöf frá Recep Tayyip Erdogan forseta Tyrklands á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem haldinn var í Ankara í Tyrklandi. Nafn Starmers var grafið í byssuna.
Í frétt BBC segir að sambærileg gjöf hafi verið gefin öllum þjóðarleiðtogum sem sóttu fundinn. Erdogan hafi aflétt útflutningshöftum á gjöfunum. Byssa Starmers er engu að síður enn í Tyrklandi, í höndum breskra embættismanna, því bannað er að flytja virk skotvopn til Bretlands. Gert er ráð fyrir að hún verði gerð óvirk áður en hún verður flutt til Bretlands.
Leiðtogafundurinn er síðasti stóri opinberi viðburðurinn sem Starmer sækir sem forsætisráðherra. Hann tilkynnti afsögn sína í síðasta mánuði.