Aðildarríki ESB náðu í dag samkomulagi um að framlengja refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu.
Deilt var um hvort fara ætti að kröfum Frakklands og Lúxemborgar um að losa tvo auðkýfinga af svarta lista bandalagsins sem telur um 3.000 einstaklinga og fyrirtæki og kveður meðal annars á um takmörkun ferðafrelsis og frystingu eigna.
Mótstaða Frakka og Lúxemborgara olli talsverðri spennu. Pólland og Eystrasaltsríkin settu sig sérstaklega á móti tilslökunum en samkvæmt fréttum eftir fund sendiherra ríkjanna í dag létu öll aðildarríkin til leiðast gegn því að refsiaðgerðirnar verði framlengdar um þrjú ár. Hingað til hafa þær verið endurskoðaðar á hálfs árs fresti.
Þetta verður að öllum líkindum lendingin nema eitthvað aðildarríki setji sig upp á móti þeim á næstu klukkustundum.
Stjórnvöld í Kænugarði brugðust illa við þessum fréttum. Andriy Sybiha utanríkisráðherra Úkraínu sagði í færslu á samfélagsmiðlum að þessi tilslökun væri óásættanleg og gæfi röng skilaboð þegar þvert á móti ætti að herða tökin á Rússlandi.
Fréttin var uppfærð með viðbrögðum Úkraínumanna.