Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa sent helstu samningamenn sína til Pakistan til viðræðna við Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans. Erindrekinn Steve Witkoff og ráðgjafinn Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trump, halda til Islamabad á morgun að sögn Trumps.
Þeir hafa farið fyrir samninganefndum Bandaríkjanna sem gert hafa drög að samkomulagi við Íran.
CNN greinir frá. Hvorki bandaríski varaforsetinn JD Vance né íranski þingforsetinn Mohammad-Bagher Ghalibaf ætla til Pakistans að þessu sinni, samkvæmt upplýsingum heimildarmanna kunnugum málinu. Olíuverð lækkaði á mörkuðum þegar tíðindin bárust.
Bandaríkjamenn líta á Ghalibaf sem höfuð sendinefnda Írans og jafnoka Vance, sem þó er sagður tilbúinn að stökkva af stað með skömmum fyrirvara.
Milligöngumenn pakistanskra stjórnvalda hafa unnið hörðum höndum að því að koma á viðræðum milli Bandaríkjanna og Írans en bæði ríki þverskölluðust við alla vikuna og sögðu alltof margt bera á milli.
Friedrich Merz Þýskalandskanslari sagði fyrr í dag að Evrópusambandið væri tilbúið að slaka á viðskiptaþvingunum gegn Íran í áföngum næðist viðunandi samningur.
Hins vegar sögðu þau Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, og Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnarinnar að of snemmt væri að boða nokkrar tilslakanir.
Fréttin var uppfærð með upplýsingum um að erindrekar Bandaríkjanna haldi til Pakistan á morgun, laugardag.