Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir vinnuslys í miðbæ Reykjavíkur upp úr klukkan eitt þegar vinnupallur féll við hús sem er verið að gera upp.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brugðust hratt við og sendu fólk á staðinn.
Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að mennirnir hafi fallið á sjötta metra.
Ekki fengust upplýsingar um hversu mikið slasaðir mennirnir eru.