Tulsi Gabbard, Yfirmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna, fullyrðir að ný gögn sýni fram á langvarandi fjármögnun bandarískra stjórnvalda á meira en 120 lífrannsóknastofum í yfir 30 löndum.
Í yfirlýsingu segir Gabbard að gögnin hafi komið í ljós eftir margra mánaða leit í gögnum og skjalasöfnum bandaríska leyniþjónustusamfélagsins.
Segir rannsóknarstofur meðal annars vera í Úkraínu
Gabbard segir að rannsóknarstofurnar séu meðal annars í Úkraínu og að slíkar stofnanir geti verið í hættu vegna stríðsins milli Rússlands og Úkraínu.
Hún fullyrðir jafnframt að bandaríska leyniþjónustan hafi áður varað við því að bandarískt fjármögnuð lífrannsóknarstofa í Úkraínu hefði líklega hýst hættulega sýkla og væri berskjölduð gagnvart árásum, yfirtöku eða skemmdum af hálfu Rússa.
Samkvæmt Gabbard hafi upplýsingum um umfang og fjármögnun þessara rannsóknarstofa hingað til verið haldið frá almenningi.
Fullyrðir að upplýsingum hafi verið haldið leyndum
Í yfirlýsingunni segir Gabbard að upplýsingum um tilvist, sögu, staðsetningu og fjármögnun rannsóknarstofanna hafi einnig verið haldið leyndum af áhrifamiklu fólki sem hafi ranglega haldið því fram að stofurnar væru ekki til.
Hún segir jafnframt að þeir sem hafi reynt að benda á málið hafi verið sakaðir um að vera erlendir útsendarar eða svikarar við Bandaríkin.
Gabbard fullyrðir að margar rannsóknarstofanna hafi stundað eða stundi rannsóknir á hættulegum og mjög smitandi sýklum. Í sumum tilvikum hafi þar farið fram hættulegar svokallaðar gain of function rannsóknir, með litlu gagnsæi eða eftirliti.
Gain of function rannsóknir fela í sér að vísindamenn breyta veirum eða öðrum sýklum til að gefa þeim nýja eða sterkari eiginleika, svo sem aukna smitgetu, í þeim tilgangi að rannsaka mögulegar framtíðarógnir og þróa varnir gegn þeim.
Vísar til forsetatilskipunar Trumps
Gabbard vísar í yfirlýsingunni til þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi þann 25. maí 2025 undirritað forsetatilskipun sem átti að stöðva alríkisfjármögnun á hættulegum gain of function rannsóknum víða um heim.
Hún segir að hún hafi í kjölfarið gefið út ný fyrirmæli til bandarísku leyniþjónustunnar um aukna gagnaöflun um rannsóknarstofur og aðstöðu erlendis.
Að sögn Gabbard hafi sú vinna þegar skilað nýjum upplýsingum um klínískar rannsóknir sem séu í gangi á slíkum stöðum og veki alvarlegar spurningar um siðferði og öryggi.
Segir Fauci og embættismenn hafa logið
Í yfirlýsingunni sakar Gabbard stjórnmálamenn, heilbrigðisyfirvöld og einstaklinga innan þjóðaröryggisteymis Biden stjórnarinnar um að hafa logið að bandarísku þjóðinni um tilvist rannsóknarstofanna.
Hún nefnir Anthony Fauci sérstaklega og segir hann og aðra hafa afneitað tilvist lífrannsóknarstofa sem voru styrktar og fjármagnaðar af bandarískum stjórnvöldum.
„Þrátt fyrir augljósa hættu á skelfilegum áhrifum á heimsvísu, sem rannsóknir á hættulegum sýklum í lífrannsóknarstofum geta haft, lugu stjórnmálamenn, svokallaðir heilbrigðissérfræðingar á borð við Dr. Fauci og aðilar innan þjóðaröryggisteymis Biden stjórnarinnar að bandarísku þjóðinni,“ segir Gabbard.
Hún segir jafnframt að fólk sem hafi reynt að varpa ljósi á málið hafi verið hótað.
ODNI hyggst halda rannsókninni áfram
Gabbard segir að stofnunin muni áfram vinna með bandarískum stjórnvöldum að því að kortleggja hvar rannsóknarstofurnar séu, hvaða sýkla þær geymi og hvaða rannsóknir fari þar fram.
Hún segir markmiðið vera að stöðva hættulegar rannsóknir sem geti ógnað heilsu og öryggi Bandaríkjamanna og fólks um allan heim.
Today, I’m releasing never before seen intelligence revealing new evidence of past US government funding for more than 120 biolabs in over 30 countries, including Ukraine.
In support of President Trump‘s Executive Order to end federal funding of dangerous gain of function… pic.twitter.com/RkPHnAbka9
— DNI Tulsi Gabbard (@DNIGabbard) June 12, 2026