„Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ - Vísir

„Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ - Vísir

„Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ - Vísir

Erlendur er fæddur árið 1990 og Guðrún Edda 1991 en hjónin hafa verið par í átta ár og eiga saman tvö börn sem slógu algjörlega í gegn í veislunni.

Guðrún Edda ræddi við blaðamann um stóra daginn.

Nýgift!Elísabet Blöndal

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Við trúlofuðum okkur 19. ágúst 2021. Á þrítugsafmælinu mínu, sem var líka skírnardagur þriggja vikna sonar okkar, fór Elli á skeljarnar heima hjá okkur í rólegheitunum. Það var persónulegt, innilegt og alveg fullkomið ef þú spyrð mig.

Elli fór á skeljarnar á þrítugsafmæli Guðrúnar Eddu.Elísabet Blöndal

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Eitt ár nánast upp á dag!

Hjúin voru í nánast eitt ár að skipuleggja brúðkaupið.Elísabet Blöndal

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Eitt orð: Geggjaður. Persónulegur með smá stress, hlátur, grátur og gleði allt í bland!

Smá stress, hlátur, grátur og gleði allt í bland!Elísabet Blöndal

Voruð þið með nokkra daga af fjöri í kringum brúðkaupið?

Já, við gerðum heila helgi úr þessu. Fjörið byrjaði strax á fimmtudeginum með góðu partýi á bar í bænum og á föstudeginum vorum við með ratleik um bæinn sem var virkilega skemmtilegur.

Hann endaði svo á því að allir komu saman á pallinum hjá okkur í drykk og spjall. Það var yndisleg leið til að koma öllum saman áður en stóri dagurinn rann upp og skapa afslappaða og skemmtilega stemningu fyrir helgina.

Gestir fengu persónulegt brúðkaupsblað.Aðsend

Voruð þið ákveðin að halda áfangastaðarbrúðkaup?

Já, eftir að við fórum í brúðkaup á Seyðisfirði sumarið 2022 urðum við alveg heilluð af hugmyndinni. Okkur fannst svo sérstakt að vera öll saman á sama stað í nokkra daga, þar sem gestirnir fá tækifæri til að kynnast betur og njóta samverunnar meira en oft gefst á hefðbundnum brúðkaupsdegi. 

Fyrir mig var þetta líka mjög persónulegt, þar sem ég á sterka tengingu við Seyðisfjörð; stjúpmamma mín er þaðan og ég hef alltaf elskað staðinn. Mig langaði ekkert meira en að fá allt mitt besta fólk með mér þangað og deila þessari einstöku upplifun með þeim.

Hjónin með fjölskyldunni í fjöri á Seyðisfirði.Aðsend

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Við vorum alveg sammála um stóru hlutina, þó ég hafi kannski fengið aðeins meira að stjórna skipulaginu. Elli hafði í raun bara eina ósk, að það yrði meira gaman og minna formlegt. Þar vorum við algjörlega sammála og það varð eiginlega leiðarljósið í öllu skipulaginu.

Meira gaman og minna formlegt var mottó veislunnar.Aðsend

Hvað fannst ykkur mikilvægast?

Það sem skipti okkur mestu máli var að fá allt okkar uppáhalds fólk til að koma alla þessa leið og fagna með okkur. Okkur fannst ótrúlega dýrmætt að svo margir skyldu leggja á sig ferðalagið til Seyðisfjarðar til að deila þessum degi og í raun allri helginni með okkur. 

Það var líka ástæðan fyrir því að við lögðum svona mikla áherslu á að skapa skemmtilega og afslappaða stemningu, þar sem allir gætu notið sín, verið saman og eignast góðar minningar.

Helgin var ógleymanleg með bestu vinum brúðhjónanna.Aðsend

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Við vildum alls ekki að þetta yrði sveitabrúðkaup enda með veislusal í miðjum bænum en ekki úti í sveit. Við erum búin að fara i nokkur brúðkaup síðastliðin ár og höfum safnað að okkur hugmyndum úr öllum áttum.

Ég sótti innblástur fyrir skrautið og útlitið víða, meðal annars af Pinterest, TikTok og Instagram. Ég hannaði sjálf allt efnið fyrir brúðkaupið, eins og boðskortin, matseðlana, borðaskipanina og ýmis önnur smáatriði. Það var mjög skemmtilegt ferli að fá að setja minn eigin svip á allt saman. 

Ég var líka einstaklega heppin að hafa mömmu mína og stjúpmömmu með í liðinu, en þær elska báðar að föndra og dúllast. Án þeirra hefði þetta aldrei orðið jafn fallegt og persónulegt.

Guðrún Edda kom nálægt öllu sem við kom brúðkaupinu og fannst rosalega gaman að skipuleggja með dyggri aðstoð móður sinnar og stjúpmóður. Aðsend

Hvað stendur upp úr?

Það sem stendur helst upp úr er hvað allt var persónulegt. Fólkið í kringum okkur átti svo stóran þátt í deginum, hvort sem það var í tónlistinni, myndatökunni eða öðrum undirbúningi. 

Það gerði upplifunina enn dýrmætari að vera umkringd fólki sem lagði hjarta sitt í að gera daginn okkar sérstakan. 

Börnin okkar reyndar standa hvað mest upp úr fyrir að hafa tekið óvænt söngatriðið í veislunni.
Börnin slóu algjörlega í gegn.Aðsend

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Kristín Ruth og Andri Þór vinir okkar sáu um veislustjórnina og gerðu það með miklum glæsibrag. Kvöldið einkenndist annars af frábærum ræðum og atriðum sem vöktu bæði hlátur og grátur. Kvöldið endaði síðan á plötusnúði sem sá um að spila okkar lög.

Fjölskyldan glæsileg.Elísabet Blöndal

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Það sem kom okkur mest á óvart voru börnin okkar. Þau höfðu undirbúið myndband þar sem þau sungu lag með Unu Torfa og við héldum að það væri þeirra framlag. Þegar það var búið vildu þau þó alls ekki hætta og enduðu á að taka fleiri lög sjálf upp á sviði.

Hápunkturinn var þegar dóttir okkar tók „Unwritten“ af þvílíkum krafti að salurinn bókstaflega trylltist. Það var algjörlega óvænt, ótrúlega skemmtilegt og ein af þeim stundum sem við munum alltaf eftir.

Dagurinn byrjaði á einlægri athöfn og endaði á rosalegu partýi.Elísabet Blöndal

Hvað voru margir gestir?

Tæplega 120 manns.

Elli og vinir hans flottir.Aðsend

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Það gekk í raun frekar vel að velja brúðkaupsfötin, þó ég hafi verið með allt aðra hugmynd þegar ég gekk inn í Loforð. Þar fann ég hins vegar kjól sem ég hefði aldrei trúað að ég myndi velja, en hann reyndist vera sá rétti.

Fyrir Ella var valið aðeins einfaldara. Hann vissi frá byrjun að hann vildi vera í „tuxedo“ og treysti strákunum hjá Suit Up fyrir því að sauma jakkafötin á sig.

Kjóllinn reyndist vera sá rétti.Elísabet Blöndal

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Ekki eyða of mikilli orku í að hafa allt fullkomið. Það verður alltaf eitthvað sem fer ekki alveg samkvæmt áætlun, en gestirnir taka sjaldnast eftir því. Mér fannst persónulega skemmtilegast að vera með puttana í öllu en þannig er ég bara. Ég hefði aldrei getað hugsað mér að láta einhvern annan sjá um þetta allt frá A til Ö.

Tíminn líður ótrúlega hratt og áður en maður veit af er stóri dagurinn liðinn. Njótið allra augnablikanna á leiðinni og munið að á endanum snýst þetta allt um að giftast besta vini sínum.
Þegar allt kemur til alls snýst þetta um að giftast besta vini sínum segir Guðrún Edda.Elísabet Blöndal

Ætlið þið í brúðkaupsferð?

Einn daginn já. Við erum ekki komin lengra í skipulagningu, framundan eru bara fótboltamót hjá krökkunum og útilegur í sumar.

#besta #endanum #giftast #snýst #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262898388d/-a-endanum-snyst-thetta-um-ad-giftast-besta-vini-sinum-

📰 Aðrar fréttir

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 0
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 0
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 0
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 0
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 0
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
📅 25.09.2026 👁️ 1
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
📅 25.09.2026 👁️ 0
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
📅 25.09.2026 👁️ 1
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Or­elien neit­ar að hafa not...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
📅 25.09.2026 👁️ 1
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
📅 25.09.2026 👁️ 1
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
„Gúgglið Oleshky. Það er umsátur um bæinn og þar er mannúðarkrísa. Það berast fregnir af því að fólk svelti og fái ekki mannúðaraðstoð, fái ekki mat e...
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
Konan lagði fram ákæru árið 2024 þar sem hún sakaði Jay-Z og Sean Combs, betur þekktur sem Diddy, um að hafa byrlað henni og nauðgað í veislu eftir að...
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
Einnig var hald lagt á búnað sem tilheyrði ræktuninni. Húsleitin mun hafa verið framkvæmd vegna gruns um að verið væri að rækta kannabisplöntur í húsi...
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
Lífið getur stundum verið fallegt í hversdeginum og þetta upplifði Sveinn Waage, leiðsögumaður með meiru, í vikunni þegar hann var djúpt snortinn af f...
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
📅 25.09.2026 👁️ 1
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Reta...
Frey sagt upp hjá Eflingu
📅 25.09.2026 👁️ 1
Frey sagt upp hjá Eflingu
Frey Rögnvaldssyni var sagt upp sem upplýsingafulltrúa Eflingar í morgun, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins segir við Vísi að uppsögnin hafi ekkert að...
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
Maður sem starfaði á hvalveiðivertíð greinir frá því að unnið rúmlega 1000 klukkustundir á svokölluðum 8x8 vöktum, án fría. Katrín Oddsdóttir, lögmaðu...
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
📅 25.09.2026 👁️ 1
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
Experts say the hack could leave agents vulnerable to scams, blackmail and targeted attacks.
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 20...
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
📅 25.09.2026 👁️ 1
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, formað­ur Vinstri grænna, skrif­ar um kostn­að að­gerða­leys­is í lofts­lags­mál­um ...
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
Greint var frá átökum á milli sundþjálfara á Vísi í síðustu viku þar sem sundþjálfari KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á ko...
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
Það er kynlífsfræðingurinn og áhrifvaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir sem opnar sig um mál umboðsskrifstofu á samfélagsmiðlinum TikTok. Samkvæmt heimil...
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir ...
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
📅 25.09.2026 👁️ 1
Met should probe handling of 'Putney Pusher' suspect death, says IOPC
Nicholas Brandram's family say he took his own life due to the "pressure" of a police investigation.
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Prís frystir ekki verð: „Við erum ódýrust og ætlum að vera það áfram“
Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta v...
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
📅 25.09.2026 👁️ 1
Jeffrey Donaldson victim describes 'profound impact' of child sex abuse
The former DUP leader was found guilty of 18 counts of child sex abuse, including one of rape, in June.
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
📅 25.09.2026 👁️ 1
NHS staff suspected of snooping on patient data to face immediate suspension
There have been too many cases of staff abusing patient trust, and enough is enough, the head of the NHS in England says.
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Freyr látinn fara frá Eflingu - Vísir
Freyr var kallaður á fund á morgun og honum sagt upp fyrirvaralaust. Vísir náði tali af Frey í morgun en hann sagðist ekkert geta tjáð sig um málið, þ...
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
📅 25.09.2026 👁️ 1
More than 413,000 cruise passengers visit Lanzarote as tourism grows
Cruise tourism in Lanzarote continues to grow strongly, with more than 413,000 passengers arriving in Arrecife between January and August this year.Fi...
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
📅 25.09.2026 👁️ 1
Starfsfólk Hagkaups varð ekki vart við lögregluaðgerð fyrir utan búðina
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í gær vegna manns með hníf og beitti hún pipar...
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Vilja breytingu á „áralöngum samskiptavanda ríkis og sveitarfélaga“
Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri Eyjafjarðarsveitar, lét af embætti sem formaður stjórnar Sambands Íslenskra sveitarfélaga í dag og við tók Almar G...
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
📅 25.09.2026 👁️ 2
Two arrested after police raid cannabis farm in Tenerife
Two men have been arrested after the Guardia Civil uncovered a substantial cannabis growing and production operation at a property in Tacoronte, in th...
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sara Lind gagnrýnir eiganda umboðsskrifstofu- „Mér persónulega finnst þetta vera költ“
Kynlífsfræðingurinn og áhrifavaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir segir umboðsskrifstofu og umboðsmann hérlendis grafa undan trúverðugleika áhrifavalda o...