Þeim fimm sem vistaðir voru í fangaklefa á Akureyri í nótt hefur verið sleppt úr haldi.
„Áframhaldandi rannsóknir kröfðust þess ekki að þeir dveldu hér lengur,“ segir Heimir Heiðarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, í samtali við mbl.is.
Mikill manngangur á Akureyri
Töluvert af fólki er í bænum en þar standa nú Bíladagar yfir, ásamt því að útskrifað er úr Háskólanum á Akureyri í dag.
Búist er við góðri mætingu á viðburði Bíladaga þrátt fyrir veður, en úrhellisrigning hefur verið síðasta sólarhringinn.
Heimir segir eitthvað hafa verið um unglingsdrykkju í gærkvöldi og í nótt. Þá var að minnsta kosti tveimur undir lögaldri ekið heim sökum ölvunar.
Einhverjir hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur, þar á meðal einn á 136 kílómetra hraða utan þéttbýlis.
Þrátt fyrir að töluvert að fólki sé í bænum vegna Bíladaga er lögreglan ekki með sérstakan viðbúnað.