Beinagrind sem fannst við fornleifauppgröft á Grænlandi í sumar staðfestir kenningar fræðimanna um að rústir sem eru þar nærri séu kirkjurústir. Ritzau fréttaveitan greinir frá.
Fornleifafræðingar fundu beinagrindina í ágúst í Qinngua nærri Narsarsuaq, skammt frá Bröttuhlíð Eiríks rauða. Rúm 60 ár eru síðan kirkjurústir norrænna manna fundust síðast á Grænlandi. Þær kirkjur voru frá víkingatímanum en þessi kirkja er stærri og talið er líklegt að hún hafi verið byggð fyrir 1450.
Töldu rústirnar vera af kirkju en enginn fannst kirkjugarðurinn
Kenningar voru um að umræddar rústir væru kirkjurústir því rétthyrndur steinveggur er umhverfis steinbyggingu í miðjunni. Það var erfitt að sannreyna að þetta væru kirkjurústir því enginn kirkjugarður fannst þar nærri.
Fornleifauppgröftur fór fyrst fram á þessum stað árið 2000 og það var ekki fyrr en í sumar að beinagrind fannst þar nærri. Beinagrindin snéri höfði sínu í austurátt, sem tíðkast í gröfum kristinna manna, og þar með var sterk vísbending komin.
Beinagrindin lá með hendurnar meðfram síðunum, sem gefur til kynna að hún hafi verið grafin snemma á miðöldum. Stærð kirkjunnar og margir höggnir steinar benda til tímabilsins 1100-1300.
Skoða þarf svæðið í nýju ljósi
Fjölmargar kirkjur norrænna manna og staðsetning þeirra eru nefndar í rituðum heimildum frá miðöldum. Frásögn af kirkju sem nefnd er „Kirkja undir Sólarfjöllum“ passar við landslagið og fjöllin þar sem rústirnar eru.
Rústir af tveimur til þremur bæjum eru nærri kirkjurústunum sem gæti gefið til kynna að þarna hafi verið lítið samfélag. Enn er margt órannsakað varðandi tíma norrænna manna á Grænlandi frá 980 til 1400, þegar þeir yfirgáfu Grænland. Ástæður þessa eru að miklu leyti óljósar.
Christian Edelfelt Koch Madsen, rannsakandi við Þjóðminjasafnið og samhæfingarstjóri rannsóknarinnar, segir að fornleifafundurinn þýði að skoða verði svæðið í nýju ljósi, enn sé margt órannsakað um tíma norrænna manna á Grænlandi og samfélagsgerð þeirra á miðöldum. Hann segir að þessi nýi fundur gæti verið enn ein vísbendingin til að skilja þá ráðgátu.