Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa sinnt nokkrum fjölda útkalla vegna fjúkandi lausamuna á Hvolsvelli og Hellu.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir það hafa verið nokkuð hefðbundin fokverkefni: þakplötur, trampólín, gróðurhús og ferðahýsi.
Á annan tug manns hafa sinnt útköllunum.