Gul viðvörun er í gildi á sunnanverðu landinu og hafa björgunarsveitir sinnt nokkrum útköllum vegna veðurs. Á Hvolsvelli og Hellu fuku ferðahýsi og trampólín. Jón Þór segir hvellinn hafa verið töluverðan í morgun og mikið rok á svæðinu.
Stormviðvörun rennur úr gildi á Suðurlandi í hádeginu en tekur gildi á Vestfjörðum klukkan þrjú og samkvæmt Veðurstofunni er fólk hvatt til þess að huga að lausamunum. Þá er varað við mikilli rigningu á austanverðu landinu í dag. Búast má við vatnavöxtum og aukin hætta er á skriðuföllum.