Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008. Starfandi sérsveitarmenn voru 46 í fyrra, tíu færri en heimild er fyrir.
Þetta eru niðurstöður nýrrar greiningar Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi. Vopnaútkall er þegar sérsveitin er kölluð út vegna tilkynningar um vopnaðan einstakling. Slíkum útköllum fjölgaði úr 56 árið 2014 í 424 í fyrra.
Flest útköllin voru vegna tilkynninga um eggvopn sem áttfölduðust á tímabilinu. Útköll vegna tilkynninga um skotvopn þrefölduðust.
Hafa ber í huga að tölfræðin segir til um tilkynningar um vopnaburð, en ekki hvort vopn hafi fundist á vettvangi eða því verið beitt. Þá nær tölfræðin aðeins yfir vopnaútköll en sérsveitin sinnir fleiri sérhæfðum verkefnum.
Í greiningu Vörðu segir að mönnun hafi ekki fylgt þessari þróun eftir. Árið 2008 voru sérsveitarmenn 41 talsins, en þeir voru 46 í fyrra.
Kallað er eftir auknum viðbúnaði í greiningu Vörðu, þar sem segir að engin teikn séu á lofti um að álag á sérsveitina fari minnkandi, heldur þvert á móti. Lagt er til að fyrsta skrefið verði að manna þau tíu stöðugildi til viðbótar sem þegar er heimild fyrir. Það myndi kosta 300 til 400 milljónir króna.
Þá þurfi að skilgreina betur hvaða verkefnum sérsveitin á að sinna og birta áætlun um mönnun og uppbyggingu sérsveitarinnar til framtíðar.