Vegfarendur í Give á Jótlandi eru beðnir um að sýna aðgát af æði sérstökum ástæðum. Danska ríkisútvarpið greinir frá því að lögreglunni á Jótlandi hafi borist fjöldi tilkynninga frá vegfarendum sem sáu kengúrur á ferð á þessum slóðum.
Þrjár kengúrur sem eru í einkaeign sluppu úr vistarverum sínum í Givskud norðan við Vejle á þriðjudaginn. Það gæti reynst þrautinni þyngri að ná kengúrunum sem eru eflaust hoppandi kátar með nýfengið frelsi.
Hægt er að sjá myndskeið sem vegfarandi náði af einni kengúrunni í frétt DR.
Lögreglan sagði í gær að hún myndi ekki grípa til aðgerða nema ef dýrin skapa hættu fyrir vegfarendur.