Alls bárust fimm tilboð í verkið og var tilboð Borgarverks það eina undir áætluðum verktakakostnaði og munaði þar 376 milljónum króna. Næstlægsta boð áttu ÞG-verktakar, upp á liðlega þrjá milljarða króna og var það fimm prósentum yfir kostnaðaráætlun. Hæsta boð átti Ístak, upp á tæpa 3,6 milljarða króna, 23 prósentum yfir áætlun.
Brúarsmíðin og vegagerðin tengjast gerð Hvammsvirkjunar og boða einhverja mestu samgöngubyltingu í uppsveitum Suðurlands um áratugaskeið. Dæmi eru um að leiðir milli einstakra byggða í Árnes- og Rangárþingi styttist um yfir fimmtíu kílómetra. Samkomulag gerir ráð fyrir að Landsvirkjun greiði 40 prósent kostnaðar en Vegagerðin 60 prósent.
Brúin verður 204 metra löng og staðsett ofan við Búðafoss skammt frá eyjunni Árnesi. Búðafossvegur verður 7,4 kílómetra langur en hann tengir Þjórsárdalsveg í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landveg í Rangárþingi ytra. Ekki kemur fram í útboðsauglýsingunni hvenær verklok séu áætluð. Í fyrri fréttum Vísis hefur þó verið skýrt frá því að verktími sé áætlaður um þrjú ár.
Í frétt Stöðvar 2 í nóvember 2024, þegar búist var við því að stutt væri í útboð, var sýnt myndband Vegagerðarinnar af útliti mannvirkjanna og staðsetningu þeirra:
Kærumál vegna virkjunarinnar hafa hindrað framkvæmdir árum saman. Sumarið 2009 vonuðust sunnlenskir ráðamenn eftir útboðinu þá um haustið, eins og rifja má upp í þessari sautján ára gömlu frétt Stöðvar 2: