Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá klukkan fimm í gær til fimm í nótt.
Nokkrir voru stöðvaðir vegna hraðaksturs, einn ók á 89 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði var fimmtíu. Þá voru nokkrir kærðir fyrir að aka án réttinda, gegn rauðu ljósi eða fyrir að aka án skráningarmerkja á ökutæki sínu. Tveir voru kærðir fyrir að hnupla í matvöruverslun.
Þá var ekið á hjólandi vegfaranda í umdæmi lögreglustöðvar 2 sem sinnir Hafnarfirði og Garðabæ. Sá hlaut minni háttar meiðsli.