Börnin sem voru í rútunni sem ekið var út af veginum á Fagradal í morgun voru grunnskólabörn úr þremur skólum í Múlaþingi. Þau voru á leið á Starfamessu í Neskaupstað.
Þetta segir Sigurbjörg Fönn Kristjánsóttir, sviðsstjóri menntunar- og lýðheilsu hjá Múlaþingi.
Hvasst er á Fagradal og Sigurbjörg segir rútubílstjórann hafa metið aðstæður þannig að vindhviða gæti feykt henni út af. Hann hafi því ákveðið að aka út af veginum til að tryggja öryggi farþega og forða frekara tjóni. Engin slys urðu á farþegum rútunnar.
Gul viðvörun er á Austfjörðum vegna rigningar og vindhviður á hafa Fagradal mælst upp undir 30 m/s samkvæmt vef Vegagerðarinnar í morgun.
Sigurbjörg segir að önnur rúta hafi komið á staðinn til að ferja börnin til baka á Egilsstaði, þar sem þau fengu áfallahjálp.