Íbúum í Setberginu í Hafnarfirði brá verulega síðdegis í gær þegar lögregla veitti Hopp-deilibíl eftirför í hverfinu og um tíma var báðum ökutækjum ekið á öfugum vegarhelmingi á miklum hraða. Telja þeir mikla mildi að ekki hafi farið verr og telja ljóst að hættuástand hafi skapast. Umræður um málið eiga sér stað í íbúahópi Setbergsins á Facebook.
Íbúum brugðið er 16 ára unglingur ók Hopp-bifreið á ofsahraða í gegnum Setbergið með lögregluna á eftir sér