Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar yfir því að lögreglumaður, sem raunar mun líklega hafa verið lögreglunemi, hefði sýnt almennum borgara óviðeigandi framkomu með ósæmilegu látbragði í umferðinni, á meðan lögreglubíllinn sem lögregluneminn sat í var í forgangsakstri. Hvorki tókst að sanna né afsanna að kvörtunin ætti við rök styðjast en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun brýna fyrir lögreglumönnum að slík hegðun sé óviðunandi og það sama mun Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu gera gagnvart lögreglunemum.
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri