Rúta með 40 skólabörn um borð hafnaði utan vegar í Fagradal fyrir skömmu. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi. Ekki er talið að neinn hafi slasast.
Þetta staðfestir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi.
Hann segir að svo virðist vera að rútan hafi hafnað utan vegar vegna vindhviðu. Gul viðvörun er á Austfjörðum vegna mikillar rigningar og á Suðausturlandi er viðvörun vegna austan storms. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar hafa hviður mælst allt að 27 m/s í Fagradal.
Kristján segir unnið að því að koma börnunum úr rútunni, til byggða og í skjól. Vinna truflar umferð en ekki liggur fyrir hvort loka þurfi veginum.