Björgunarsveitir frá Stokkseyri og Árborg sinntu útkalli vegna skemmuþaks sem virtist ætla að fjúka af í heilu lagi.
Skemman er við bóndabæ austan við Stokkseyri. Björgunarsveitarfólk batt þakið niður og festi við dráttarvél í skemmunni.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að dregið hafi úr aðstoðarbeiðnum eftir því sem leið á morguninn, en björgunarsveitir á Hvolsvelli og Hellu sinntu nokkrum útköllum vegna foks í morgun.