RÚV hefur birt skilaboðin sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, þáverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann var mennta- og barnamálaráðherra, sendi honum á Signal til þess að fá hann til að segja af sér sem ráðherra þegar hann var nýútskrifaður af spítala eftir hjartaaðgerð. Hafði þá birst frétt á RÚV um að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, ætlaði að gera hrókeringar á ráðherrum flokksins.
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“