Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, sem var aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann gegndi embætti mennta- og barnamálaráðherra, þrýsti á hann að tilkynna um afsögn þegar hann var nýútskrifaður af spítala. Þá hafði þegar verið ákveðið að Guðmundur skyldi láta af embætti, þvert á hans vilja.
Í skilaboðunum, sem fréttastofa hefur undir höndum, segir Guðbjörg Guðmundi að tveir kostir séu í stöðunni fyrir hann: að tilkynna um afsögn eftir veikindaleyfi – eða stríð.
Guðmundur Ingi var þá í leyfi eftir hjartaaðgerð. Þegar hafði verið greint frá því að til stæði að Ragnar Þór Ingólfsson, eiginmaður Guðbjargar, tæki sæti í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur í hans stað.
Guðmundur heyrði fyrst af áformunum degi áður en hann fékk skilaboðin, í símtali við aðstoðarmann Ingu Sæland.
Í skilaboðum Guðbjargar kom jafnframt fram að ákvörðunin um að Guðmundur léti af embætti væri alfarið Valkyrjanna, þvert á það sem Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur sagt.
Gert að segja af sér á sjúkrabeði
Guðmundur Ingi sagði í viðtali við fréttastofu RÚV í síðustu viku að sér hefði verið gert að segja af sér ráðherraembætti á sjúkrabeði.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og núverandi mennta- og barnamálaráðherra, hefði hringt í eiginkonu hans á þriðja degi jóla þegar hann lá inni á spítala eftir hjartaaðgerð og krafist þess að fá að hitta hann. Þar hefði átt að gera honum ljóst að hann yrði að hætta sem ráðherra.
Inga sagði að Guðmundur Ingi væri ekki að greina rétt frá. Upplifun hennar af aðdraganda afsagnar hans væri önnur og að ákvörðunin hefði verið hans eigin.
Í sama viðtali sagði Guðmundur Ingi frá skilaboðum frá aðstoðarmanni sínum, Guðbjörgu Ingunni. Hann sagði að hún hefði sent sér texta sem hann átti að birta með afsögn sinni. Honum hefði blöskrað það, því Guðbjörg Ingunn er eiginkona Ragnars Þórs, þá þingmanns Flokks fólksins, sem átti að koma inn í ríkisstjórn í stað Guðmundar Inga.
„Þarna fannst mér aðstoðarmenn komnir langt út fyrir sitt svið. Ég hugsaði með mér að svona vinnubrögð gætu bara ekki gengið upp,“ sagði Guðmundur Ingi í viðtalinu við RÚV. Hann ákvað að hætta, frekar en að fara „í fæting“ heilsunnar vegna.
Ákvörðunin eingöngu „Valkyrjanna“
Guðbjörg Ingunn sendi Guðmundi Inga skilaboð á Signal, samskiptaforriti þar sem hægt er að eiga dulkóðuð samskipti, 7. janúar. Þá lá þegar fyrir að Guðmundur léti af embætti og að Ragnar Þór fengi sæti í ríkisstjórn.
Guðbjörg sagðist „fyrst hafa frétt af þessu þegar frétt birtist á RÚV“ og vísaði þar líklega til fréttar um væntanlegar hrókeringar í ríkisstjórninni.
Hún sagði að það hefði veitt sér mikla gleði að vinna með Guðmundi Inga og að hún ætti eftir að sakna samstarfsins. Það væri áfall fyrir hana að missa starfið og erfið staða fyrir þau bæði.
Þá sagði Guðbjörg að þetta væri staða sem Guðmundi hugnaðist ekki. Hún vissi að þetta væri sárt og erfitt en að vera hans í stjórnmálum væri mikilvæg.
Hún sagði ákvörðunina eingöngu Valkyrjanna, og vísaði þar til formannanna í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur en ekki þingmanna Flokks fólksins. Hún vonaðist til þess að Guðmundur Ingi sneri aftur á Alþingi.
Stríð væri engum til hagsbóta
Guðbjörg sneri sér svo að kjarna málsins. Hún sagði að Guðmundi stæðu tvær leiðir til boða – að tilkynna veikindaleyfi og snúa til baka á þing þegar hann hefði heilsu til eða að fara í stríð.
Seinni kosturinn, stríðið, yrði engum til hagsbóta, hvorki honum né flokknum og gæti verið öllum erfiður. Þá lagði hún til stöðuuppfærslu fyrir hann að birta þar sem hann tilkynnti um afsögn sína.
Guðbjörg sagðist vonast til þess að Guðmundur Ingi, sem hún ávarpar sem Gumma, færi ekki úr flokknum þrátt fyrir að þessi ákvörðun hefði verið tekin.
„Það var bara verið að hóta mér stríði“
Guðmundur Ingi segir í samtali við fréttastofu að skilaboðin hafi verið hótun. Öllum hafi verið ljóst að hann vildi ekki láta af embætti. „Það var verið að setja mér afarkosti og það hafði þegar verið gert. Það átti að gera mér það alveg ófært að vera áfram ráðherra.“
Guðmundur Ingi segir að sig hafi snemma farið að gruna að vilji væri fyrir því að skipta honum út úr ríkisstjórn. Hann segist virða þá ákvörðun en honum blöskrar hvernig farið var að því að bera ákvörðunina undir hann og fá hans samþykki. „Það er alvarlegt mál þegar formaður flokks sendir aðstoðarmann sinn til að segja mér hvernig ég eigi að segja af mér,“ segir Guðmundur.
Þá hafi honum brugðið við skilaboðin frá sínum aðstoðarmanni. „Það var bara búið að ræða þetta og ákveða það og ef ég myndi berjast gegn því þá yrði það bara stríð. Það var bara verið að hóta mér stríði.“
Hann segir sér hafa verið stillt upp við vegg og þess vegna ákveðið að verða við því að hætta.
„Ég hafði enga orku í að vera í stríði, þarna er ég varla farinn að standa í lappirnar.“
En fannst þér þú eiga heima í þessu embætti og vera starfi þínu vaxinn? „Já mér fannst ég spjara mig ágætlega. Ég var fyrsti ráðherrann til að heimsækja 27 framhaldsskóla og gekk mjög vel. Ég var í góðu samstarfi við kennarasambandið og sveitarfélögin. Ég taldi mig vera á réttri leið.“
Guðmundur Ingi segir að Ragnar Þór hafi gefið í skyn að hann hafi sagt ósatt í viðtalinu í síðustu viku og honum líki það illa.
„Hann var bara að ýja að því að ég væri ómerkilegur. Svo finnst mér þau hreinlega komin á þann stað að þau eru að ljúga. Ég vil bara skila skömminni til hans. Ég hef ekkert að skammast mín fyrir.“