Xi Jinping, forseti Kína, kom til Bandaríkjanna í gær. Hann á fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu síðar í dag.
Það vakti athygli að Trump tók á móti Xi á flugvellinum sem er ekki algengt. Það þykir til marks um að Bandaríkjaforseti vilji sýna Xi mikla virðingu í hans fyrstu opinberu heimsókn til Bandaríkjanna í meira en áratug.
Melania Trump forsetafrú var með í för og Peng Liyuan sömuleiðis með eiginmanni sínum Xi. Þrjátíu metra langur rauður dregill var lagður við stigann þegar kínversku forsetahjónin stigu út úr flugvélinni.
Móttakan markar upphaf þriggja daga heimsóknar sem búist er við að verði íburðarmikil og hátíðleg.
Klukkan tvö í dag að íslenskum tíma tekur Trump á móti Xi í Hvíta húsinu og þeir segja nokkur orð við fjölmiðla. Fundurinn, sem er lokaður, hefst um kl. 15:30. Í kvöld verður svo formlegur hátíðarkvöldverður í Hvíta húsinu.
Undir yfirborðinu ríkir spenna á milli stórveldanna tveggja, bæði í viðskiptum og í þróun gervigreindar. Þá hefur afstaða til Taívans lengi verið þrætuepli ríkjanna tveggja og nú er Trump í stríði við Íran sem er ágætis vinaþjóð Kína.