Krónan ætlar að frysta verð á 647 vörum fram að áramótum til að bregðast við ákalli um aðgerðir til að lækka verðbólgu og draga úr kostnaði fyrir heimili landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krónunni.
Verðbólga mældist 5,6% í ágúst og Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti úr 7,75% í 8%.
VR, Landssamband íslenskra verzlunarmanna og Fagfélögin sendur stórum fyrirtækju bréf um miðjan mánuð þar sem kallað var eftir svörum um hvað þau hygðust gera til að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Verðfrysting Krónunnar nær til vara undir vörumerkjunum Krónan, Krónan Lífrænt, Krónan Ódýrt, First Price, Grön Balance og Gestus. Í þessum flokkum eru ýmsar algengar vörur, frá matvöru til hreinlætisvara. Krónan greip til sambærilegrar aðgerðar árið 2022.
„Með aðgerðinni vill Krónan leggja sitt af mörkum til að lækka verðbólgu, auka stöðugleika og draga úr kostnaðarhækkunum á heimilin,“ segir í tilkynningunni.
„Verð varanna mun því ekki hækka á tímabilinu, jafnvel þótt innkaupsverð, flutningskostnaður eða aðrir kostnaðarliðir hækki. Skapist hins vegar svigrúm til verðlækkana, til dæmis vegna lægra innkaupsverðs eða styrkingar krónunnar, verður þeim ávinningi skilað áfram til viðskiptavina.“
Haft er eftir Guðrúnu Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastjóra Krónunnar, að fyrirtækið vilji leggja sitt af mörkum til að skapa aukinn stöðugleika og styðja við lækkun verðbólgu og vaxta.
„Þótt matvara sé ekki helsti drifkraftur verðbólgunnar um þessar mundir teljum við mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum,“ segir Guðrún.