Landsmenn hafa eflaust ekki farið varhluta af veðrinu. Gular veðurviðvaranir voru í gildi á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Austfjörðum, Suðausturlandi og á Miðhálendinu.
Sigurður Ragnarsson betur þekktur sem Siggi stormur sagði í Reykjavík síðdegis í gær á Bylgjunni að í hans bókum væri lægð dagsins fyrsta alvöru haustlægðin. Það má sjá vel á svipmyndum Sigurjóns að haustið er farið að segja til sín.