Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að manni sem var á reynslulausn verði gert að fara aftur í fangelsi til að sitja af sér eftirstöðvar refsingarinnar. Hafði maðurinn hlotið þrjá mismunandi dóma en var að afplána þá alla samhliða. Maðurinn er sterklega grunaður um innbrot í fyrirtæki þar sem meðal annars 16 fartölvum var stolið. Reyndi maðurinn að selja starfmanni veitingastaðar eina tölvuna en fullyrti við lögreglu að hann hefði ætlað að gefa viðkomandi, sem hann þekkti ekki neitt, tölvuna þar sem honum hefði þótt það fyndið.
Síbrotamaður í vanda eftir mislukkað erindi á veitingastað í Reykjavík