Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins beindi hörðum orðum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og ríkisstjórninni allri í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi rétt í þessu.
Guðrún spurði Ingu út í þau gögn sem nú eru fram komin um þrýsting sem Guðmundur Ingi var beittur í aðdraganda þess að hann sagði af sér sem ráðherra.
„Það er fátt farið að koma mér á óvart þegar kemur að flokki fólksins,“ sagði Guðrún.
Inga sagðist ekki ætla að ræða opinberlega málefni Guðmundar Inga.
Inga sagði að henni þætti leitt að Guðmundur Ingi upplifi samtöl þeirra með ólíkum hætti.
„Ég skal vera hreinskilin,“ sagði Inga.
„Það er ljóst að okkur Guðmundi Inga greinir á um aðdraganda og ástæður þeirra breytinga sem urðu. Ég kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp.“
Fréttin verður uppfærð.