Rúta með rétt um 40 grunnskólabörnum innanborðs fór út af veginum ofarlega á Fagradal á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar í morgun.Í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi kemur fram að tilkynning um atvikið hafi borist lögreglu klukkan 09:40. Talið er að snörp vindhviða hafi feykt rútunni út af.„Ekki er talið að nein slys hafi orðið. Björgunarsveitir og aðrir viðbragsaðilar vinna að því á vettvangi að koma þeim sem í rútunni voru til byggða og í skjól á Egilsstöðum. Sú vinna er langt komin,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal