Corinna Schumacher, eiginkona Formúlu 1-goðsagnarinnar Michael Schumacher, opnar sig um samband þeirra og lífið eftir skíðaslysið örlagaríka í nýrri heimildarmynd Netflix.Tæp 13 ár eru liðin frá því Schumacher slasaðist alvarlega á höfði þegar hann féll á skíðum í frönsku Ölpunum þann 29. desember 2013. Fjölskyldan hefur alla tíð gætt mikillar leyndar um heilsufar hans og Corinna aðeins örsjaldan rætt opinberlega um líf þeirra eftir slysið.
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta