Ólga er meðal nágranna og innan borgarkerfisins út af endurbyggingu húss við Drafnarstíg 3 í Vesturbæ Reykjavíkur. Kvikmyndagerðarkonan Elísabet Ronaldsdóttir stendur að framkvæmdunum en byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar hefur farið fram á verkstöðvun vegna þess að byggingin sé ekki samkvæmt teikningum.Fyrir um fjórum árum hófst það verkefni Elísabetar Ronaldsdóttur, kvikmyndagerðarkonu, að endurbyggja gamalt hús við Drafnarstíg 3 í Vesturbæ Reykjavíkur. En húsið er þinglýst á son hennar, Þorstein Mána Hrafnsson.
Ólga út af húsbyggingu Elísabetar Ronaldsdóttur í Vesturbænum - „Ég held að það sé verið að gera fíl úr mýflugu“