Alls voru 17 handteknir í umfangsmiklum lögregluaðgerðum á höfuðborgarsvæðinu á þriðjudag. Þetta kemur fram í viðtali mbl.is við Elínu Agnesi Eide Kristínardóttur yfirlögregluþjón. Elín upplýsir að 11 manns hafi verið sleppt úr haldi en sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald fram til föstudags. Sexmenningarnir eru allir íslenskir.
Stóra lögregluaðgerðin: Sautján voru handteknir