Þrátt fyrir bráðabirgðaúrskurð dómstóls um að gefa eigi fjölmiðlunum CNN, MS NOW og Politico aðgang að Hvíta húsinu var þeim ekki hleypt inn í morgun. Samkvæmt miðlunum sjálfum vísaði lífvarðasveit forsetans þeim á brott.
Bráðabirgðaniðurstaða dómstólsins kveður á um að miðlarnir skuli fá aðgang að Hvíta húsinu í 14 daga þar sem aðgerð Bandaríkjaforseta brjóti líklega gegn stjórnarskrá.
Á föstudag tilkynnti Donald Trump forseti Bandaríkjanna bannið og fjölmiðlarnir þrír höfðuðu mál í kjölfarið. Trump sagðist vilja banna þá frá Hvíta húsinu því þeir segðu falsfréttir.
Það verður mikið um að vera í Hvíta húsinu í dag. Klukkan tvö í dag að íslenskum tíma tók Trump á móti Xi Jinping, forseta Kína, í Hvíta húsinu og þeir sögðu nokkur orð við fjölmiðla.
Fundurinn, sem er lokaður, hefst um kl. 15:30. Í kvöld verður svo formlegur hátíðarkvöldverður í Hvíta húsinu.