Nýtt áhættumat frá leyniþjónustu danska hersins gerir ráð fyrir að ógnin frá Rússlandi verði meiri á næstu mánuðum gagnvart NATO og Vesturlöndum. Þetta kom fram á blaðamannafundi í morgun með varnarmálaráðherra ásamt yfirmönnum hersins og leyniþjónustunnar.
Á fundinum í Kaupmannahöfn í morgun var fjallað um nýtt áhættumat FE, sem er leyniþjónusta danska hersins. Þar kom fram að undanfarna mánuði hefði Rússland aukið fjölþáttahernað í Evrópu og að slíkar árásir yrðu tíðari á næstu mánuðum.
Þá er átt við óhefðbundnar árásir eins og að senda dróna inn í lofthelgi og trufla flugumferð, eða jafnvel valda eldsvoða.
Thomas Ahrenkiel, yfirmaður FE, segir niðurstöðurnar einkum þrjár.
- Gert er ráð fyrir auknum fjölþáttahernaði Rússa á næstu mánuðum
- Lítil en vaxandi hætta á að Rússland geri hernaðarárás á NATO-ríki
- Ólíklegt en ekki útilokað að Rússland ráðist inn í NATO-ríki
Jeppe Bruus, varnarmálaráðherra Danmerkur, segir að ástandið hafi ekki verið alvarlegra frá lokum kalda stríðsins.
Uppfært áhættumat þýði að nú verði gerðar meiri kröfur til dönsku þjóðarinnar um að fylgja fyrirmælum og búa sig undir alvarlegt atvik - þótt ekki sé talin hætta á eiginlegri hernaðarárás á Danmörku.