Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi lektor við Háskólann á Hólum, er ómyrk í máli um stöðu íslenskunnar í miðborg Reykjavíkur og víðar. Rætt er við Sigríði í Morgunblaðinu í dag og birtar myndir af fjölda auglýsingaskilta sem eru á ensku en ekki íslensku í miðborginni.Sigríður hefur meðal annars rannsakað enskuvæðingu í íslenskri ferðaþjónustu ásamt kollegum. Mikið hefur verið rætt um enskunotkun hér á landi og sitt sýnist hverjum.
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“