Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Trúarlegt framhjáhlaup er þegar einstaklingur neitar að axla ábyrgð og ákallar æðri máttarvöld sér til bjargar. Hugtakið kemur úr sálfræði en á einnig við stjórnmál. Tveir formenn Viðreisnar, auk sitjandi varaformanns, iðka trúarlegt framhjálaup og telja það sér til tekna.
Eftir ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst birtu Þorgerður Katrín og Daði Már, formaður og varaformaður Viðreisnar, sameiginlega yfirlýsingu. Viðreisn er eini ESB-flokkurinn á alþingi, fékk 15,8% kjörfylgi í síðustu þingkosningum og mælist i könnunum með liðlega tíu prósent. Án Viðreisnar, og frekjunni að fá þjóðaratkvæði í þágu smáflokks, hefði þjóðinni ekki verið att út í hálfs-árs harðvítuga kosningabaráttu.
Í yfirlýsingu Þorgerðar Katrínar og Daða Más er trúarlegt framhjáhlaup. Í einn stað segja formaður og varaformaður Viðreisnar að verkefni íslenskra stjórnmála sé að halda gjaldmiðlinum stöðugum, vöxtum hóflegum, stuðla að heilbrigðri samkeppni og efla frelsi til orða og athafna. Í annan stað játa þau Þorgerður Katrín og Daði Már að verkefnið sé þeim ofviða. Aðeins Evrópusambandið getur bjargað Íslandi. Með orðum forystu Viðreisnar:
Evrópusambandsaðild var aldrei markmið í sjálfu sér, heldur verkfæri til að ná fram meginmarkmiðum Viðreisnar: stöðugum gjaldmiðli, lægri vöxtum fyrir heimilin og fyrirtækin, heilbrigðari samkeppni og frjálslyndara samfélagi
Evrópusambandið er almáttugt verkfæri til að gera Ísland farsælt, er viðkvæðið. Við sjálf kunnum ekki og getum ekki. Ísland er táradalur en ESB himnaríki. Kotungsbragur er á orðum tvíeykisins, að ekki sé sagt lítilmannleg sjálfsvorkunn tveggja ráðherra sem eyða um efni fram og vilja ólmir selja fjölskyldusilfrið til Brussel til að fela eigin vangetu.
Yfirlýsing Þorgerðar Katrínar og Daða Más var skrifuð eftir að úrslit kosninga höfuðdags lágu fyrir. Kannski truflaði tapið dómgreindina. Á öðrum tíma hefðu þau útlistað Evrópustefnu Viðreisnar á annan veg. Nei, ekki ef marka má stofnanda og fyrsta formann Viðreisnar, Benedikt Jóhannesson. Að morgni kjördags skrifaði hann færslu á Facebook í sama anda. Upphafsorðin:
Þá er komið að deginum mikla. Ég hef undanfarinn mánuð skrifað mikið um Evrópusambandið – ekki vegna þess að ég hafi sérstakan áhuga á því, heldur vegna þess að ég óska þess að Íslandi vegni betur um langa framtíð.
Sannarlega trúi ég því að með fullri aðild verði efnahagslífið stöðugra á Íslandi.
Við myndum varla upplifa 2007 þegar aðalefni blaðanna var vangaveltur um hvaða auðmaður hefði eftirsóknarverðasta lífstílinn og forsetinn flutti fyrirlestra um íslenska snilld.
En það væri líka ólíklegra að upplifa ár eins og 1967-68 þegar krónan missti helming af verðgildi sínu, 1983 þegar verðbólgan fór í 120% og 2008 þegar eignir hröpuðu í verði og skuldir tvöfölduðust. (feitletr. pv)
Benedikt fer hálfa öld aftur í tímann til að útlista að allt sé ómögulegt á Íslandi. Evrópusambandið sé vegurinn, sannleikurinn og lífið - en þó hafi Benedikt engan ,,sérstakan áhuga á" ESB. Öllu skiptir að bjarga Íslandi úr táradalnum, þar sé Evrópusambandið eina vonin. Við kunnum ekkert sjálf og getum enn minna. Aðeins ESB kann og getur.
Á nær öllum mælikvörðum um hagsæld og lífskjör stendur Ísland framar Evrópusambandinu. Ísland myndi borga með sér inn í sambandið. En fyrir sanntrúaða skipta hlutlæg sannindi ekki máli.
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar er játning stjórnmálaflokks sem á ekkert erindi við Íslendinga - annað en að gera þá að þegnum Evrópusambandsins.