Gervigreindarlíkan tæknifyrirtækisins OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almenna sjúkratryggingakerfis Ástralíu, Medicare-kerfið. Fyrirtækið lét áströlsk stjórnvöld ekki vita af atvikinu fyrr en núna í september.
Komst í gögn og tölfræði ekki persónuupplýsingar
Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, greindi frá atvikinu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem er í New York þessa dagana. Gervigreindin komst inn í tölvukerfið í júní. Hún komst í opinbera vefgátt fyrir tölfræðigögn um Medicare án heimildar.
Öryggisbresturinn er til rannsóknar hjá áströlskum stjórnvöldum en olli miklum áhyggjum í Ástralíu. Yfir 27 milljónir eru sjúkratryggðar í gegnum kerfið.
Viðkvæmar persónuupplýsingar eru ekki geymdar í vefgáttinni heldur gögn og tölfræði um rekstur kerfisins, meðal annars útgjöld þess. Albanese segir gervigreindina hafa fengið aðgang að opinberum og óopinberum gögnum í vefgáttinni.
OpenAI sagði í tilkynningu að gervigreindarlíkanið hefði verið að reyna að afla tiltækra tölfræðigagna til að svara spurningum um Ástralíu í innra mati fyrirtækisins. Það fékk ekki aðgang að neinum sjúkraskrám, einungis samantekt á tölfræði.
Við framkvæmd verkefnisins leitaði það meðal annars í Medicare-vefgáttinni, auk þriggja annarra ástralskra vefsíða.
Atvikið algjörlega óásættanlegt.
Albanese segist hafa rætt við Sam Altman, forstjóra OpenAI í gær til að lýsa yfir miklum áhyggjum af atvikinu. „Ég lýsti einnig yfir vonbrigðum með að það hafi tekið fyrirtækið alltof langan tíma að upplýsa ríkisstjórnina um hvað gerðist.“
Hann segir að 10. september hafi yfirvöld verið upplýst um málið, þá hafi tölvupóstur verið sendur á opinbert tölvupóstfang stjórnvalda. Starfsmenn fara yfir tölvupósthólfið einu sinni á dag og uppgötvuðu ekki tölvupóstinn fyrir en daginn eftir. Atvikið var síðan tilkynnt til Áströlsku netöryggismiðstöðvarinnar 15. september.
Starfshópur hafi verið skipaður til þess að kanna lagalegar afleiðingar atviksins.
Richard Marles, varaforsætisráðherra Ástralíu, segir öryggisbrestinn mjög alvarlegan. „Gervigreindin hlaut óheimilan aðgang inn í vefsíðu ástralskra stjórnvalda og það er algjörlega óásættanlegt og við höfum sagt það skýrt við OpenAI.“