Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlensk-íslensku Ingu Dóru Guðmundsdóttur og Rasmus Gjeddsø Bertelsen, sem er alþjóðastjórnmálafræðingur og prófessor við Norðurslóðaháskólann í Tromsø. Inga Dóra segir Grænlendingum létt, Rasmus er ósammála flestum sem hafa tjáð sig um samninginn og segir að í honum sé skýr takmörkun á fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Mat umsjónarmanns Heimsgluggans var að eftir digurbarkalegar yfirlýsingar og hótanir hefði fjallið tekið joðsótt og fæðst mús.
Mikill léttir á Grænlandi
Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen, framkvæmdastjóri hjá Air Greenland og fyrrverandi stjórnmálamaður og ritstjóri, segir að Grænlendingum sé létt eftir að samkomulagið var undirritað í New York. Það ríki hamingja með að endir hafi verið bundinn á langt og erfitt tímabil. Fólk hafi flaggað og Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, og Múte B. Egede utanríkisráðherra hafi fengið höfðinglegar móttökur við heimkomuna til Nuuk.
Samt blendnar tilfinningar
Inga Dóra segir að samtalið um áhrif samningsins sé að byrja, hverjir hagnist og hvaða áhrif hann hafi á grænlenskt samfélag, einkum þar sem herstöðvar verði byggðar í Narsarsuaq og Meistaravík. Bandarísk herstöð og flugvöllur var í Narsarsuaq frá því í síðari heimsstyrjöldinni og til 1958. Óvíst er hvaða áhrif ný herstöð þar hefur á byggðina nærri flugvellinum. Fólk sem býr í grennd við flugvöllinn og fleiri hafi því blendnar tilfinningar.
Flestir telja samninginn góðan fyrir Grænlendinga og Dani
Flestir sérfræðingar telja að Danir og Grænlendingar geti verið ánægðir með samninginn við Bandaríkin um varnir Grænlands sem var undirritaður á þriðjudag í New York. Almennt er álitið að samningamönnum þeirra hafi tekist vel upp. Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnar Grænlands, sagði samninginn fantastískan og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, var einnig mjög ánægð á blaðamannafundi eftir undirritunina. Nielsen sagði alla græða á samningum. „Win-win-win“. Leiðtogar ríkjanna lögðu mikla áherslu á að með þessu væri verið að efla varnir NATO á norðurslóðum. Nielsen sagði í færslu á Facebook að þetta hefðu verið langar og erfiðar viðræður en Grænland tilheyrði Grænlendingum og það yrði ekki tekið frá þeim.
Samningurinn mögulegur án hótana
Vilborg Ása Guðjónsdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum Grænlands, skrifaði á Facebook:
Á heildina litið er niðurstaðan mun betri en margir þorðu að vona, og þessi samningur hefði svo auðveldlega geta orðið án hótana eða þvingunaraðgerða Bandaríkjaforseta.
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og fyrrverandi alþingismaður, skrifaði á Facebook-síðu sína:
Niðurstaðan af brölti Trumps virðist sú að Bandaríkjunum sé nú heimilt að stunda hernaðaruppbyggingu á Grænlandi sem alltaf hefur staðið til boða og Bandaríkjamenn hafa sjálfir verið misáhugasamir um. Hér sem víðar er Trump að sparka upp opnum dyrum með miklum fyrirgangi. Hann hafi ekki fengið yfirráð yfir Grænlandi.
Telur samninginn takmarka fullveldi
Rasmus Gjeddsø Bertelsen, alþjóðastjórnmálafræðingur og prófessor við Norðurslóðaháskólann í Tromsø, bendir á að í 10. grein samningsins sé ákvæði sem sé skýr takmörkun á fullveldi konungsríkisins Danmerkur og framtíðarfullveldi sjálfstæðs Grænlands. Bandaríkin hafi neitunarvald á fjárfestingum frá löndum sem ekki eru í NATO eða ESB. Bertelsen segir að samningaferlið hafi borið skýr merki um tækni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hann hafi fyrst farið fram með hótanir sem hafi verið út í hött. Hann hafi leikið „bad cop“ en utanríkis- og varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafi verið „good cop“.
Færeyingar vilja líka sjálfsákvörðunarrétt
Beinir Johannesen lögmaður Færeyja óskaði Dönum og Grænlendingum til hamingju með samninginn um varnir Grænlands í færslu á Facebook. Færeyjar eru þriðja landið í ríkissambandi Danmerkur. Johannesen ítrekaði kröfu um sjálfsákvörðunarrétt Færeyja, sambærilegan við réttindi Grænlands.
„Færeyjum skal tryggður sjálfsákvörðunarréttur í öllum málum sem varða Færeyjar.“
Johannesen skrifaði að Danir viðurkenndu að grænlenska þjóðin væri þjóð sem hefði sjálfsákvörðunarrétt og að ákvarðanir um framtíð Grænlands væru teknar af grænlensku þjóðinni en ekki öðrum. Þetta eigi ekki við um Færeyjar en því þurfi að breyta.