Donald Trump Bandaríkjaforseti þarf að veita fjölmiðlunum CNN, MS NOW og Politico aftur aðgang að Hvíta húsinu. Þetta er niðurstaða dómstóls í Washington D.C.
Bráðabirgðaniðurstaða dómstólsins kveður á um að miðlarnir skuli fá aðgang að Hvíta húsinu í 14 daga þar sem aðgerð Trumps brjóti líklega gegn stjórnarskrá.
Það var á föstudag sem Trump tilkynnti bannið og fjölmiðlarnir þrír höfðuðu mál. Hvíta húsið hefur ekki tjáð sig um niðurstöðuna.
99 fjölmiðlar, þeirra á meðal CBS News, The New York Times og Fox News, birtu yfirlýsingu til stuðnings málsókn CNN, MSNBC og Politico.
Hér að neðan má sjá sjónvarpsfrétt um bann Trumps frá því á þriðjudag.