Parið byrjaði að slá sér upp árið 2018 eftir að systir hans kynnti þau. Þau trúlofuðu sig árið 2021 og gengu í hjónaband í nóvember 2022. Þar tók hún upp nafn eiginmannsins og heita þau því bæði Taylor Lautner en gengst hún undir gælunafninu Tay til að koma í veg fyrir misskilning.
Nú hafa hjónin átt sitt fyrsta barn og greina frá því á Instagram. Litla stúlkan fæddist 16. september. Hún var nefnd í höfuðið á foreldrum sínum og fékk nafnið Lennon Taylor Lautner.
Lennon er fyrsta barn hjónanna.
Taylor er best þekktur fyrir leik sinn í Twilight-kvikmyndunum sem varúlfurinn Jacob. Hann og Tay eru saman með hlaðvarpið The Squeeze. Tay starfaði áður sem hjúkrunarfræðingur en sneri sér að öðru eftir kórónuveirufaraldurinn.