Mjög djúp lægð nálgast landið úr suðri, segir í morgunpistli frá Veðurstofu Íslands.
Það gengur í austan hvassviðri víða um land með morgninum og sunnanlands má búast við stormi eða jafnvel roki fram að hádegi.
Viðvörun hefur verið gefin út og fólk er hvatt til að huga að lausamunum. Ferðaveður er varasamt. Lægðinni fylgir afar stórt og ákaft úrkomusvæði og því rignir á öllu landinu í dag.
Á Suðausturlandi og Austfjörðum er útlit fyrir mikla rigningu. Möguleiki er á staðbundnum flóðum, grjóthruni eða skriðuföllum, sem geta valdið tjóni eða raskað samgöngum.
Seinnipartinn í dag fer lægðarmiðjan að færast yfir landið og dregur þá úr vindi nokkuð víða. Í kvöld verður stærstur hluti landsins í litlum eða skaplegum vindi inni í lægðarmiðjunni en á Vestfjörðum verður áfram hvassviðri eða stormur.
Á morgun gera spár ráð fyrir að lægðin taki sér stöðu rétt úti fyrir Norðausturlandi. Hún sendir þá hvassan norðanstreng yfir norðvesturhluta landsins og með fylgir talsverð rigning eða slydda og snjókoma til fjalla því það kólnar í þessum landshluta.
Um landið sunnan- og austanvert verður mun skárra veður, vindur úr vestri eða suðvestri á bilinu 5–13 metrar á sekúndu og væta með köflum, því lægðardrag frá lægðinni liggur yfir landinu. Hiti á láglendi 3–13 stig, kaldast á Vestfjörðum en hlýjast á Austurlandi.