Gular viðvaranir taka gildi ein af annarri víða á landinu í dag og segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands að hyggilegt sé að tryggja lausamuni. Þá eru ferðalangar hvattir til að hafa varann á.Fyrsta gula viðvörunin tók gildi á Suðurlandi klukkan 6 í morgun og svo í kjölfarið fylgja viðvaranir fyrir Suðausturland, Miðhálendið, Austfirði og loks Vestfirði.
Veðurfræðingur um stöðuna í morgunsárið: „Nú er mjög djúp lægð að nálgast landið“