„Ég vil nú bara efast um að margt af þessu fólki sé í raun og veru með hag barnanna í huga,“ segir Ragnar Bjarnason, innkirtlalæknir barna, þegar hann er spurður um trans fóbíska orðræðu, ranghugmyndir og þekkingarskort á starfsemi trans teymisins í þættinum Meiningu á Rás 1.
Ragnar segir að eftir að hafa kynnst þeirri vanlíðan sem mörg trans barna eru að fara í gegnum vegna ástands síns þá sé fólk sannarlega ekki að verja hagsmuni barnanna.
„Ég á bágt með að sjá hvernig það er að vernda hagsmuni þeirra með því að neita þeim um þjónustu sem lætur þeim líða betur.“
Í hlaðvarpinu Meining er fjallað um bakslagið í málefnum hinsegin fólks hér á landi. Í nýjasta þætti er staða yngri kynslóðarinnar meðal annars skoðuð með læknum í trans teymi barna og ungmenna.
Hér má hlusta á þáttinn:
Trans börn hafi alltaf verið til
Björn Hjálmarsson, barnageðlæknir í trans teymi barna, segir sárustu ranghugmyndina vera þá að trans börn eigi ekki tilverurétt.
„Að þetta séu einhver mistök og ruglingur og það eigi að taka tilveruréttinn af þeim. Það er nóg að skoða bara mannkynssöguna. Trans börn og trans fólk hefur alltaf verið til. Þau eru bara núna að öðlast hugrekki og visku til þess að koma fram með sinn trans veruleika.“
Björn telur fordómana fyrst og fremst stafa af fákunnáttu og þekkingarleysi á líffræði mannsins.
„Og virðingarleysi gagnvart því að þessi svokallaða kynjatvíhyggja, að það séu bara til karlar og bara til konur, að hún bara stenst ekki.“
Hann verður oft skelkaður yfir trans fóbískri orðræðu.
„Á skáldlega vísu þá finnst mér eins og trans börnin séu eins og lítil falleg blóm sem eru að opna sig í moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu.“
Stoltur af íslenskri heilbrigðisþjónustu
Björn segir barnalæknisfræðina standa og falla með því að læknum takist að varðveita færni barnanna til að njóta fullorðinsára.
Og þangað erum við að stefna, að farsælli persónumótun þessara barna, að þau fái að vera þau sjálf.
Björn segist sjálfur hafa verið viðkvæmur fyrir trans fóbískum hugmyndum áður en hann kynnti sér málaflokkinn.
„En eftir því sem maður kynnir sér málaflokkinn betur þá verð ég stoltari og stoltari af því að við á Íslandi séum komin með framsækin lög og heilbrigðisþjónustu sem verndar rétt þessa fólks, þessa minnihlutahóps, til góðrar heilbrigðisþjónustu.“
Ekkert barn fer í kynleiðréttingaraðgerð
Ragnar undirstrikar að ekkert barn, enginn undir átján ára aldri, fari í kynleiðréttingaraðgerð hér á landi. Krosshormónar séu gefnir í fyrsta lagi eftir sextán ára aldur.
„Við erum í nánu sambandi við innkirtlalækna, gerum ítarlegt geðrænt mat á börnunum til þess að sjá hvort þau séu tilbúin, því við viljum að þau séu geðrænt stöðug þegar að þessi inngrip koma,’’ segir Björn.
Í tilviki krosshormóna er gert formlegt mat á færni barna til að veita upplýst samþykki. Hvort barnið skilji áhrif og aukaverkanir. Björn telur því að siðferðislega sé trans þjónustan hér á landi áratugum á undan annarri þjónustu.
,,Því við erum að gefa kröftug geðlyf sem hafa aukaverkanir en við erum ekki að fara fram á upplýst samþykki fyrir því. Þannig að ég tel að trans þjónustan gangi þarna á undan með góðu fordæmi, svona siðvæðingu í læknisfræði.“
Enginn faraldur, bara veruleiki
Trans teymin eru tvö, barna- og fullorðinsteymi. Fjöldi tilvísana í barnateymið náði hámarki 2022 þegar sextíu tilvísanir bárust en það endurspeglaði uppsafnaða þjónustuþörf. Síðan þá hefur tilvísunum fækkað. Í fyrra bárust 57 tilvísanir og þær eru 37 það sem af er þessu ári. Björn segir að fjöldinn sé sambærilegur þeim sem er í öðrum löndum.
„Þannig að þetta er ekki faraldur, þetta er veruleiki sem er að koma í ljós vegna þess að við erum með öflug og framsækin lög sem tryggja mannréttindi þessa hóps,“ segir Björn.
„Alþjóða læknasamfélagið hefur komist að þeirri niðurstöðu að það að vera trans er ekki geðsjúkdómur. Þetta er líffræðilegur og sálrænn veruleiki sem við kunnum ekki enn að skýra með aðferðum vísindanna hvernig er tilkominn, en það tekur ekki burtu siðferðilega kröfu okkar að sinna þessum viðkvæma hópi sem allra allra best,“ segir Björn.