Rekstrartekjur félagsins voru rúmar sex hundruð milljónir og rekstrargjöld 143 milljónir. Eftir skatta og önnur gjöld var hagnaðurinn 340 milljónir samanborið við 151 milljón árið áður.
Eigið fé félagsins lækkaði um 170 milljónir milli ára og er nú 945 milljónir. Bókfærðar eignir eru metnar á rúman milljarð króna.
Félagið var að meðaltali með þrjú stöðugildi og greiddi rúmar sextíu milljónir í laun á árinu. Félagið á eignarhlut í fjölda félaga, þar á meðal hundraða prósent hlut í RVK Studios sem er framleiðslufyrirtæki Baltasars.