Jökull Júlíusson söngvari Kaleo gaf Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, axlarskjól sitt eftir tónleikahátíðina Bergmál sem fram fór á Þingvöllum í gær.
Axlarskjól Jökuls vakti sannarlega athygli á tónleikunum en það er í fánalitunum og er listalega handprjónað með fallegu mynstri. Halla var að vonum glöð yfir þessari óvæntu gjöf sem verður góður minjagripur um ókomna tíð fyrir þessa eftirminnilegu tónlistarhátíð á Þingvöllum.