Vesturbæingar kvöddu verslunina Kjötborg með trega þegar dyrum verslunarinnar var lokað í dag í hinsta sinn eftir áratuga rekstur. Góð stemmning var í versluninni á síðasta degi og tónlist leikin í góða veðrinu fyrir utan.
Verslunin hefur staðið við horn Ásvallagötu og Blómvallagötu síðan 1981. Allan þann tíma hefur Kristján Aðalbjörn Jónasson, kaupmaður og annar Kjötborgarbræðra, staðið vaktina við búðarborðið.
Þegar fréttastofa leit við hafði kaupmaðurinn fullt í fangi með að þjónusta viðskiptavini. Þeirra á meðal voru þrjár kynslóðir af Kvaran-konum.