Lögreglan hefur yfir engu að kvarta á tónlistarhátíðinni Bergmál á Þingvöllum enn sem komið er. Þetta segir Jón Gunnar Þórhallsson yfirlögregluþjónn á Suðurlandi í viðtali við fréttastofu.
„Umferðin hefur gengið vel. Fólk hefur greinilega hlustað á skilaboðin og lagt snemma af stað og við fögnum því,“ segir Jón Gunnar. „Hún hefur náttúrlega gengið mjög hægt en það hefur aldrei orðið stopp. Það hefur gengið vel að fara inn á stæðin og fólk hefur greinilega fjölmennt í bíla og talsvert í rútur líka.“
Ferðamenn eru núorðið bróðurhluti þeirra sem fara um Þingvelli. Jón Gunnar segir þá ekki hafa verið til neinna vandræða. Þó hafi reynt á þar til lokað var fyrir umferð.
„Við vorum náttúrlega með ferðamenn af öllum þjóðernum hérna bara inni í miðjum stemnings-Íslendingum. Auðvitað reyndi það á en gekk upp.“
Hvernig er þessi viðbúnaður í samanburði við aðrar stórar hátíðir eins og kannski Þjóðhátíð?
„Það er ekki hægt að bera þetta saman. Þetta er bara allt önnur staðsetning og þetta er afmarkað svæði,“ segir Jón Gunnar. „En eins og ég segi, fólk hefur verið mjög jákvætt og mér sýnist hérna yfir hópnum þá er góð stemning yfir öllu. Þannig ég hef ekki yfir neinu að kvarta eins og er en við erum nú að leggja af stað inn í kvöldið og vonum að þetta haldist svona áfram.“