Það er allt að gerast hjá First Water í Ölfusi skammt frá Þorlákshöfn því þar er verið að koma upp risakerjum undir landeldið og nú þegar er slátrun hafin á fimm kílóa laxi og útflutningur á laxinum gengur vel.
Ómar Grétarsson er sölu- og markaðsstjóri First Whater
„Nú erum við komin með framleiðslugetu upp á fimm þúsund tonn af laxi svo það standa allar hendur fram úr ermum. Við erum bara mjög stolt af því sem við erum komin með í hendurnar. Við erum farin að ala upp núna vikulega og slátra fimm kílóa laxi og farin að selja út um allan heim. Þetta er bara mjög spennandi allt saman,” segir Ómar.
Og það er mikil uppbygging hjá fyrirtækinu framundan?
„Já, svo sannarlega. Við erum hálfnuð með það sem við köllum fyrsta fasann. Við klárum hann vonandi í lok næsta árs en það er samt sem áður bara einn sjötti af öllu verkefninu,” segir Ómar.
Ómar segir að í dag vinni um 90 manns hjá fyrirtækinu og starfsfólki eigi eftir að fjölga mikið eftir því sem líður á. 20 ker undir landeldið eru nú þegar komin upp en þegar allri uppbyggingu verður lokið um 2031 eiga að vera komin upp 160 ker þar sem hægt verður að rækta um 60 þúsund tonn á ári af laxi.
Ómar segir að það gangi mjög vel að selja laxinn til fjölmargra landa og að fjórði hver lax sem alinn er upp eða ræktaður í heiminum fari í Súsí.
„Staðan er sú að lax er orðin mjög eftirsótt vara. Við getum slátrað laxi á Íslandi á mánudegi og framreitt hann á Súsí-veitingastað hvort sem er í Kína eða Kaliforníu á miðvikudegi,” sagði Ómar ánægður og alsæll með það hversu vel gengur hjá First Water í Ölfusi.