Franska fótboltagoðsögnin Eric Cantona leikur hlutverk í myndinni Hólmavík sem var tekin upp á Íslandi og á Spáni. Elma Lísa Gunnarsdóttir leikur eiginkonu skúrksins Franks, leikinn af fótboltamanninum fræga. Blaðamaður hitti leikkonuna nýlega og fékk að heyra af ævintýrum í Baskalandi með goðsögninni.
Leikur algjöran óþokka
„Kvikmyndin heitir Hólmavík og gerist í San Sebastian og á Íslandi. Leikstjórinn Mikel Aguirresarobe skrifaði líka handritið. Þetta er stórmynd sem fjallar um lögfræðing sem kemur til landsins og ætlar að kaupa fiskvinnslustöð á Hólmavík. Þetta er spennuþrungin dramamynd og mjög þekktur leikari frá Madrid, Sergio Peris-Mencheta, leikur lögfræðinginn og Eric Cantona leikur í henni, auk spænskra og íslenskra leikara.
Ég fékk símtal frá framleiðendunum Erni Marinó Arnarsyni og Þorkeli Harðarsyni og þeir báðu mig að leika konu persónu Erics Cantona. Ég var nú ekki viss um hver það var og fór svo að skoða þetta og sá þá að hann er frægur fótboltamaður,“ segir hún og brosir.
„Ég veit ekkert um fótbolta en veit að hann er alveg stór. Hann hefur verið að leika og er mjög flottur leikari og stór karakter,“ segir hún.
„Ég var þarna núna í maí í tökum í San Sebastian á Norður-Spáni. Cantona leikur algjöran óþokka og við erum að skilja og ég fer að halda við salsakennara. Þetta er lítið afmarkað hlutverk en mjög skemmtilegt. Ég má ekki gefa upp of mikið af söguþræði,“ segir hún, en myndin kemur út í janúar 2027.
Töluðum ekki um fótbolta
Cantona hóf kvikmyndaferil sinn skömmu eftir að hann hætti í fótbolta og kom fyrst fram í minni hlutverkum, meðal annars í sögudramanu Elizabeth (1998). Smám saman festi hann sig í sessi í frönskum kvikmyndaiðnaði þar sem persónutöfrar hans og djúp rödd skemmdu ekki fyrir.
Hvernig er Cantona?
„Hann er ótrúlega fínn. Við töluðum um tísku, en hann er flottur í tauinu, og ræddum um París þar sem hann býr. Ég hefði ekki getað haldið uppi samræðum við hann um fótbolta og passaði mig að fara ekki inn á þær brautir,“ segir Elma Lísa og brosir.
„Það var mjög gott að leika á móti honum því hann er mjög almennilegur.“
Ítarlegt viðtal við Elmu Lísu er í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina.
