Pakistanski herinn gerði loft- og drónaárásir á tíu mismunandi stöðum í Afganistan í nótt.
Ráðherra upplýsingamála í Pakistan, Attaullah Tarar, greindi frá árásunum í færslu á X. Hann sagði árásirnar beinast að griðastöðum hryðjuverkamanna og hafi takmarkast við hernaðarleg skotmörk sem tengjast tilraunum til árása á Pakistan.
Íbúi í Kandahar greindi frá því við fréttaveituna AFP að árás hafi verið gerð á miðborg borgarinnar og eldur hefði brotist út í kjölfarið. Kandahar er heimaborg æðsta leiðtoga talibana, Hibatullah Akhundzada.
Vopnahlé hefur ekki haldist
Nokkuð hefur verið um átök á landamærum Afganistan og Pakistan undanfarna mánuði. Átökin stigmögnuðust í febrúar og þá gerði pakistanski herinn loftárásir á Kabúl og Kandahar. Átök héldu áfram þó einkum við landamærin og hundruð almennra borgara voru drepnir í árásunum.
Samið var um vopnahlé í mars og þrátt fyrir milligöngu fjölmargra þjóða hefur það ekki haldið. Yfirvöld í Pakistan fara fram á að talibanar hafi hemil á Tehreek-e-Taliban Pakistan, eða TTP, sem er hópur vígamanna sem hefur gert fjölmargar árásir í Pakistan á síðustu árum.
Talibanar hafna því að þeir haldi hlífiskildi yfir TTP og saka Pakistan um að styðja aðra vígahópa og virða ekki fullveldi Afganistan.
31 var drepinn í árás á lögreglustöð í norðurhluta Pakistan á föstudag og hópur sem tengist TTP lýsti yfir ábyrgð á árásinni.