Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, verður ekki boðið að fylgjast með þingkosningum í Bandaríkjunum í nóvember næstkomandi. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu á vefsíðu stofnunarinnar sem birt var í dag.
Öll ríki Evrópu eiga aðild að ÖSE auk Bandaríkjanna, Kanada, Kasakstan, Kirgistan, Tadsjikistan, Túrkmenistan og Úsbekistan. Aðildarríkin hafa skuldbundið sig til að bjóða eftirlitsmönnum frá öðrum aðildarríkjum og viðeigandi einkastofnunum og samtökum til kosningaeftirlits.
Þetta verður í fyrsta sinn síðan 2002 sem ÖSE verður ekki með kosningaeftirlit í Bandaríkjunum. Frá árinu 2002 hafa fulltrúar ÖSE verið með kosningaeftirlit í 12 kosningum í Bandaríkjunum, þar af 6 þingkosningum.
Í tilkynningu ÖSE segir að á undanförnum tveimur áratugum hafi stofnunin byggt upp samstarf við alríkis-, ríkisíkis- og sveitastjórnaryfirvöld, kjörstjórnir, stjórnmálaflokka, almenning og aðra hagsmunaaðila.
Forstöðukona Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE (ODIHR), Maria Telalian, harmar að kosningaeftirlitinu verði ekki framhaldið við þingkosningarnar í nóvember.
Telalian segir að kosningaeftirlit sé ekki dómur yfir landi eða stofnunum þess, heldur veiti það kjósendum, þeim sem sjá um framkvæmd kosninga, frambjóðendum og almenningi óháð og hlutlaust mat á framkvæmd kosninganna.